14.8.2008 | 19:07
Fiskidagurinn mikli á Dalvík.
Við hjónin og tvíbbarnir ásamt hundunum skruppum á Fiskidaginn mikla á Dalvík, þetta var hin mesta skemmtun og sáum við eina flottustu flugeldasýningu sem við höfum séð. Hittum marga góða vini, kíktum á hótelstýruna á Dalvík o.fl. Á föstudagskvöldinu var að sjálfsögðu rölt á milli húsa og fengin fiskisúpa sem er hreint út sagt ómissandi á þessari helgi. Á eftir að setja inn myndir frá helginni en þær koma síðar.
Ég hvet þá sem ekki hafa heimsótt Fiskidaginn mikla á Dalvík að kíkja á næsta ári, þetta er bara meiriháttar fjölskylduhátíð.
vs
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.