Fyrsta hópflug sumarsins.

Í gær fórum við feðgar ásamt tengdaforeldrum og nokkrum Geirfuglum í hópflugi til Blönduós þar sem heimamenn tóku fagnandi á móti okkar.  Við fórum í svipað flug fyrir tveimur árum að sumra sögn en það voru víst orðin fjögur og þess þá mikilvægara að skreppa norður.  Við sem fórum frá Reykjavík voru TF-STR, TF-NEW, TF-MAX, TF-LMB og TF-SKN flogið var inn Hvalfjörð og stefnan tekin á Holtavörðuheiðina, Arnarvatnsheiði og beint á Blönduós (BIBL)

BIBL 023 Víðihlíð, hver kannast ekki við það?

BIBL 040 Jæja komnir á Blönduós

BIBL 080 Þarna eru höfuðborgarvélarnar mættar á Blönduós.

BIBL 087 Jæja þá er það flugtak frá BIBL og stefnan tekinn á Gjögur.

BIBL 094 Flogið út Hrútafjörð

BIBL 100   BIBL 108 Á stuttri lokastefnu á Gjögri (BIGJ)

BIBL 145 Landslagið á Vestfjörðum er magnað en þó var ókyrrðin í lofti orðin þreytandi.

Hótel Grænahlíð, staður sem sjómenn þekkja vel.

Í dag verða settar inn fullt af myndum frá hópfluginu á myndasíðu okkar en tvíbbarnir Valur og Gulli voru mjög duglegir að mynda í ferðinni og svo tók Einar fullt upp á video.

http://public.fotki.com/valur/flug/flug-2008/hpflug--blndus-gjgu/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gudni.is

Skemmtilegar myndir hjá ykkur feðgum. Ég er alveg búinn að missa mig yfir öllum flugmyndunum á Fotki myndasíðunni þinni.

Það lítur ekkert voðaleg skemmtilega út veðurlega séð fyrir lendingakeppnina hjá okkur á Tungubökum í kvöld. Ætlaðir þú að keppa sjálfur?

gudni.is, 5.6.2008 kl. 15:05

2 Smámynd: Valur Stefánsson

Sæll Guðni.

Nei því miður komst ég ekki á Silfur Jódelinn. 

Takk fyrir það.  Gulli á eftir að setja sínar myndir inn frá Blönduós fluginu. 

Valur Stefánsson, 6.6.2008 kl. 01:01

3 Smámynd: gudni.is

Lendingarkeppni var frestað vegna veðurs í gærkvöldi. Verður næstkomandi fimmtudagskvöld.

gudni.is, 6.6.2008 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband