1.6.2008 | 11:16
Fyrsta hópflug sumarsins.
Í gær fórum við feðgar ásamt tengdaforeldrum og nokkrum Geirfuglum í hópflugi til Blönduós þar sem heimamenn tóku fagnandi á móti okkar. Við fórum í svipað flug fyrir tveimur árum að sumra sögn en það voru víst orðin fjögur og þess þá mikilvægara að skreppa norður. Við sem fórum frá Reykjavík voru TF-STR, TF-NEW, TF-MAX, TF-LMB og TF-SKN flogið var inn Hvalfjörð og stefnan tekin á Holtavörðuheiðina, Arnarvatnsheiði og beint á Blönduós (BIBL)
Víðihlíð, hver kannast ekki við það?
Þarna eru höfuðborgarvélarnar mættar á Blönduós.
Jæja þá er það flugtak frá BIBL og stefnan tekinn á Gjögur.
Á stuttri lokastefnu á Gjögri (BIGJ)
Landslagið á Vestfjörðum er magnað en þó var ókyrrðin í lofti orðin þreytandi.
Hótel Grænahlíð, staður sem sjómenn þekkja vel.
Í dag verða settar inn fullt af myndum frá hópfluginu á myndasíðu okkar en tvíbbarnir Valur og Gulli voru mjög duglegir að mynda í ferðinni og svo tók Einar fullt upp á video.
http://public.fotki.com/valur/flug/flug-2008/hpflug--blndus-gjgu/
Athugasemdir
Skemmtilegar myndir hjá ykkur feðgum. Ég er alveg búinn að missa mig yfir öllum flugmyndunum á Fotki myndasíðunni þinni.
Það lítur ekkert voðaleg skemmtilega út veðurlega séð fyrir lendingakeppnina hjá okkur á Tungubökum í kvöld. Ætlaðir þú að keppa sjálfur?
gudni.is, 5.6.2008 kl. 15:05
Sæll Guðni.
Nei því miður komst ég ekki á Silfur Jódelinn.
Takk fyrir það. Gulli á eftir að setja sínar myndir inn frá Blönduós fluginu.
Valur Stefánsson, 6.6.2008 kl. 01:01
Lendingarkeppni var frestað vegna veðurs í gærkvöldi. Verður næstkomandi fimmtudagskvöld.
gudni.is, 6.6.2008 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.