Glæsileg flugvika.

Opið hús hjá Flugmálafélagi Íslands er einn af viðburðum í glæsilegri Flugviku Flugmálafélagi Íslands.  Vikan byrjaði með opnu húsi í Fluggörðum s.l. sunnudag, í gær var svo Ómar Ragnarsson að rekja garnirnar úr gömlum flughetjum eins og Magnúsi með flugskírteyni nr. 9, Smára Karls, Dagfinni Stefánssyni o.fl.  Í dag var svo opið hús hjá Gæslunni og svo er þétt dagskrá út vikuna sem endar á Flugdeginum mikla sem haldinn verður við skýli 1 á Reykjavíkurflugvelli (fyrir aftan Hótel Loftleiði) en þar verða þverskurðurinn af léttum vélum til sýnis og einnig stór glæsileg sýningar atriði.   Veðurspáin er góð og vonumst við til þess að hún haldi Wink

Hvet alla til að taka þátt í Flugvikunni en dagskránna má finna á heimasíðu Flugmálafélagsins www.flugmal.is

Á þessari mynd hér að neðan sem ég tók frá svæði Gæslunnar í dag eru TF-LIF og Fokker vél Gæslunnar í formation.

fmi 053 copy


mbl.is Gæsluvélar í sýningarflugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Valur takk fyrir að minna mig á FLUGVIKUNA hef alltaf farið á völlinn þegar ég hef getað, ætla að mæta á morgun 24 maí.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.5.2008 kl. 23:37

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Valur þetta var frábær skemmtun að vera þarna upp á flufvelli, var að vonast til að hitta þig þar, en því miður sá ég þig ekki

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 25.5.2008 kl. 16:40

3 Smámynd: Valur Stefánsson

Sæll.

Já þetta heppnaðist alveg frábærlega, ég var nú vel sýnilegur var í orange vesti þar sem ég var starfsmaður á flughlaðinu en það var mitt verk að sjá um að fá vélar til að vera til sýnis og raða þeim upp. 

Valur Stefánsson, 25.5.2008 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband