20.5.2008 | 23:45
Glæsileg flugvika.
Opið hús hjá Flugmálafélagi Íslands er einn af viðburðum í glæsilegri Flugviku Flugmálafélagi Íslands. Vikan byrjaði með opnu húsi í Fluggörðum s.l. sunnudag, í gær var svo Ómar Ragnarsson að rekja garnirnar úr gömlum flughetjum eins og Magnúsi með flugskírteyni nr. 9, Smára Karls, Dagfinni Stefánssyni o.fl. Í dag var svo opið hús hjá Gæslunni og svo er þétt dagskrá út vikuna sem endar á Flugdeginum mikla sem haldinn verður við skýli 1 á Reykjavíkurflugvelli (fyrir aftan Hótel Loftleiði) en þar verða þverskurðurinn af léttum vélum til sýnis og einnig stór glæsileg sýningar atriði. Veðurspáin er góð og vonumst við til þess að hún haldi
Hvet alla til að taka þátt í Flugvikunni en dagskránna má finna á heimasíðu Flugmálafélagsins www.flugmal.is
Á þessari mynd hér að neðan sem ég tók frá svæði Gæslunnar í dag eru TF-LIF og Fokker vél Gæslunnar í formation.
Gæsluvélar í sýningarflugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heill og sæll Valur takk fyrir að minna mig á FLUGVIKUNA hef alltaf farið á völlinn þegar ég hef getað, ætla að mæta á morgun 24 maí.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 23.5.2008 kl. 23:37
Heill og sæll Valur þetta var frábær skemmtun að vera þarna upp á flufvelli, var að vonast til að hitta þig þar, en því miður sá ég þig ekki
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 25.5.2008 kl. 16:40
Sæll.
Já þetta heppnaðist alveg frábærlega, ég var nú vel sýnilegur var í orange vesti þar sem ég var starfsmaður á flughlaðinu en það var mitt verk að sjá um að fá vélar til að vera til sýnis og raða þeim upp.
Valur Stefánsson, 25.5.2008 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.