"skítlegt eðli"

  • „Ég hélt satt að segja ekki, og vona að mér fyrirgefist að ég segi það, að svona skítlegt eðli væri inni í hæstv. forsrh. en það kom greinilega hér fram. ( Gripið fram í: Hvað sagði ræðumaður?) Ég sagði: svona skítlegt eðli.“
13. febrúar 1992 — Um Davíð Oddsson, „Ræða Ólafs á Alþingi“. Sótt 11. desember 2005.

Þetta skítlega eðli fyrirfinnst greinilega ennþá en núna hjá Seðlabankastjóra, honum er alveg sama um alla hluthafa í Glitni bara að því að hann fyrirlítur Jón Ásgeir Jóhannesson.  Þessi einræðisherra átti að vera löngu sestur í helgan og hætta öllum afskiptum hvort heldur er að pólitík eða Seðlabankanum.  Eftir að hafa hlustað á viðtal við stjórnarformann Glitnis í Kastljósinu í kvöld þá kemur þessi setning með "skítlega eðlið" aftur og aftur upp í hugann. 

Verst þykir mér nú að hafa kosið þetta dýr á sínum tíma Devil


Bloggfærslur 30. september 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband