30.4.2008 | 22:18
Jæja ekki tókst það í kvöld
Jæja nú er úti draumurinn um Mestaradeildina og aðeins 4. sætið í deildinni en það gefur okkur allavega rétt á Meistaradeildinni að ári. Þetta var súrt að detta svona úr og fúlt sjálfsmark og allt það en það þýðir ekki að gráta Björn bónda það verður bara að undirbúa næsta tímabil og lægja öldurnar hjá eigendum félagsins.
En varðandi leikinn í kvöld:Fyrsta markið var aula mark og hefði mátt verja það auðveldlega.
Þriðja markið hjá Chelsea var þvílík aulavörn, menn hættu að ellta sóknarmann og notuðu frekar kraftana í að veifa rangstöðu.
Mark Babels svo í lokin var auðvitað tær snilld og sýnir hve frábær knattspyrnumaður þessi drengur er.
Nú verður spenna hvort það verða UTD eða Chelsea sem vinna deildina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.4.2008 | 17:29
Tilboð í kaup / smíði á nýjum Herjólfi opnuð í gær.
Það kom mér nú nokkuð á óvart að EIMU núverandi rekstraraðili Herjólfs hefði ekki boðið í nýja skipið. Fulltrúi EIMU sagði nú í viðtali að hann vildi nú bara að heimamenn fengju þetta en þeir eiga nú lægsta tilboðið þó svo að það sé langt yfir kostnaðaráætlun.
Hann er nú nokkuð flottur nýji Bakkafjöru Herjólfurinn. Ég átti nú samt von á því að hann yrði öflugri en útboðsgögn gera ráð fyrir t.d. er siglingar hraðinn svipaður og á núverandi Herjólfi.
Ég er hræddur um að kostnaðurinn við Bakkafjöruhöfn eigi eftir að fara töluvert umfram áætlanir og svo er spurning um garðana hvort þeir þurfi ekki að fara töluvert utar.
En varðandi undirskriftarlista Magga Kristins & Co þá er ég sammála Kristjáni Möller samgönguráðherra að hann væri allt of seint á ferðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.4.2008 | 09:31
Skemmtilegar myndir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.4.2008 | 22:27
Aldrei spurning - Kjöldráttur !!
Þetta var aldrei spurning, BETRA liðið VANN! punktur!
Þvílík kelling þessi Wenger!!
"Wenger: Allar stórar ákvarðanir dómaranna voru gegn okkur"
![]() |
Liverpool og Chelsea sigruðu og mætast í undanúrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 9.4.2008 kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.4.2008 | 20:01
Fyrsti flugtúr vorsins
Í gær var farinn fyrsti flugtúr vorsins enda veðrið hið allra besta sól og blíða. Við feðgarnir Valur og Gulli flugum frá Keflavík um Kleifarvatn og austur í Múlakot.
Flott ísmynd af Kleifarvatni, en Gulli sá um myndatökuna meðan pabbinn flaug.
Flogið norðan við Þorlákshöfn. Gulla fannst þetta allt þröngt úr lofti og spurði hvernig Herjólfur kæmist þarna inn í vondum veðrum, mér var þá hugsað til hans Simma bloggvinar sem starfaði í mörg ár sem stýrimaður á Herjólfi.
Því miður búa margir þarna, en við feðgar ræddum mikið um fangelsis mál eftir að Gulli tók þessa mynd og akkúrat þegar þetta er ritað þá er verið að fjalla um það í fréttunum á RÚV að öll fangelsis pláss séu full.
Þessi hrossa hópur vakti athygli Gulla og sérstaklega þessi aftasti, hvað var hann að gera svona fyrir aftan hina??
Við leituðum uppi þetta plast sumarhús sem Sigurbjörg og Siggi á Hvassafelli eiga í Fljótshlíðinni, ekki veit ég hvað þau nefna slotið en eigum við ekki að kalla það Hvassafell.
Við að komast inn á lokastefnu í Múlakoti með N9911V en Eiríkur Karlsson var á henni en feðgarnir voru að skjótast að Stíflisdalsvatni og komu við þarna "í leiðinni" eins og Eiríkur orðaði það.
Lentir í Múlakoti en þarna voru þrjár aðrar vélar : N9911V, TF-RJC og TF-DIS
Verið var að setja þak einingarnar á flugskýlið í kotinu, það verður mikill munur þegar það verður komið upp, þá þurfum við ekki að binda út í rjóðri lengur
Þarna eru þeir Steini "Rollari" og Óli Níls að fara í loftið frá MK.
Sumarhús Capt. Einars Dagbjartssonar.
Gulli varð að taka mynd fyrir ömmu sína og afa til að senda þeim, svo þau gætu fylgst með framkvæmdunum en meira að segja byrjað að setja upp pallinn við húsið.
Nesjavallarvirkjun flott í vor sólinni en samt hvítt yfir öllu.
Svo nauðsynlegt að láta eina af vinnustaðnum Innnes ehf. fylgja með.
Eitthvað er nú til af bílum á kajanum.
Jæja þá erum við að komast aftur heim, en lentum í smá vandræðum þar sem við urðum að nota GSM símann til að tala við turninn, einhverra hluta vegna þá heyrðu þeir ekki í okkur en við heyrðum vel í þeim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.4.2008 | 20:07
Aftur jafnt á Emirates!
Meistaravonir Arsenal orðnar að engu eftir enn eitt jafnteflið við Liverpool á Emirates. Einhverra hluta vegna getur Arsenal ekki unnið Liverpool á heimavelli sínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)